Nýjustu fréttirnar af Tungunni...

Tungan

28.06.2008 14:02:35 / tunga

Hættur fyrir löngu að blogga.

Eins og þið sjáið þá er ég lönguhættur að blogga.

Býst ekki við að taka upp þetta blogg aftur nema að ég fari að ferðast eitthvað erlendis.

Kveðja
Gunnar Þór


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 11:28:50 / tunga

Símaskráa vandamál

Þvi miður lenti ég í því að síminn minn eyðilagðist og kortið með. Er kominn með nýjan síma og nýtt kort.

 Mig þætti vænt um að þið sem eruð með mig í símaskránni að senda mér sms og ég færi ykkur inn. 

 

Þurfið bara að muna að segja nafnið ykkar í sms-inu !

 

Thank you !

....tungan out !  


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.11.2007 22:48:57 / tunga

BÍLL TIL SÖLU !! KOSTAKJÖR

Já ég er ekkert hættur að blogga, ekki nema 3 mánuðir , það er ekki neitt. En aðalerindið er ég er með bíl til sölu og ekkert smá gott eintak. Er að selja fyrir systir mína sem er flutt til London og því er ekki þörf á að eiga bíl lengur !!!

LÝSING Á HONUM:

Svartur POLO (comfort týpan), árgerð 2002 (fer á götuna í nóvember "02, hann er ekinn 45 þúsund.( sem þýðir að meðaltal keyrsla er undir 10þúsund á ári). Hann er 5 dyra. Hann er skoðaður "08. Vel með farinn og sparneytinn. Hann er sjálfskiptur og þægilegur í akstri. Hann hefur aldrei lent í tjóni. Hann er með 1 fyrrverandi eiganda og svo systir mín. Klassabíll ekki satt. Á honum er sirka 400.000 kr lán sem hægt er að yfirtaka. Smurbók er í 100 % í lagi.

 

Verð 890.000 kr

Staðgreiðsluverð = 850.000 kr sem er kostaprís. 

 

Call me 868-6687 ef þið viljið meiri info eða prufukeyra :)

Gunni 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 00:52:55 / tunga

Fuzzball anyone ???

 

Jæja þá er maður kominn með eitt stykki fuzzball table á Einarsnesið. Óskar kom og hjálpaði kallinum að setja draslið saman. Takk fyrir það meistró ;) Síðan tókum nokkra leiki og þetta svínvirkar ;) Maður verður að halda tournament bráðlega ;) !!! Það er meira segja 2 standar til að geyma bjórinn meðan maður er að spila. Að sjálfsögðu sötrar maður milli marka ;)

.....tungan out !


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.08.2007 23:51:32 / tunga

Herra Lazarus, skóli framundan og fleira !!!

Jæja nú skólinn að fara að byrja í lok vikunnar. En ég ligg reyndar í veikindum akkúrat núna. Þannig að ég var herra Lazarus í dag og verð það líka á morgun, vonandi verð ég góður á miðvikudag. Sem er reyndar síðasti dagurinn minn í vinnunni. Ég flyt suður á miðvikudagskvöld eða fimmtudagsmorgun.

Er búinn að mæla mér mót á fimmtudaginn til Kidda Lofts í kaffi og bakkelsi til að ná í Fúzzball borðið sem ég keypti af honum. Djöfull verður nice að sötra bjór og taka nokkra leiki við félaganna á Einarsnesinu góða. Er einhver game ??

Var að fjárfesta í bíl núna í byrjun mánaðarins. Þar sem góði avensis-inn minn brann þá varð ég að endurnýja. Fyrir valinu var SKODA SUPERB 2.0 , 2003 árgerð!! Mjög sáttur! Núna er bara að sjá hvernig hann reynist. Var búinn að vera með Polo-inn hennar systur minnar í láni. Sem er btw til sölu. Hann er 2002 árgerð og ekinn 42.000 km sem er djók keyrsla miðað við aldur. Klassa-bíll sem er rosa sparneytinn eins og allir polo eru.

Ég fór á Fiskidaginn mikla um helgina með kærustunni en það var allt´i lagi en ég var bara svo veikur á laugardagskvöldinu og sunnudeginum að ég náði ekkert að njóta mín. En það sem stóð upp úr voru án efa tónleikarnir með Villa naglbít í Dalvíkurkirkju. Váááá hvað það var geggjað !! Hann var að syngja lög af hans nýjustu plötu = the midnight circus. Og að sjálfssögðu fjárfesti ég í einu eintaki. Mjög góður , rólegur diskur. Þið verðið bara að koma í heimsókn og fá að hlusta ;)

Er að spá í því að byrja í körfunni aftur með úrvalsdeildinni eða 1.deildina. Komast´i alvöru bolta. En hvert á maður að fara?? Einhverjar hugmyndir. Hvaða lið er með góðan þjálfara/ góðan móral og vantar einn duglegan dreng í liðið sitt ?? humm ha humm ;)

Er að stefna að því að hlaupa 10 km í RVK maraþoninu á laugardag. Ætlið þið ekki að búa til skilti sem stendur GO GUNNI ??? Ekki veitir af því ekki er ég í mínu besta formi, en það kemur. Best að fá "ríaletty tjékk" á hlaupaforminu fyrir "sísonið"! ;)

Er að spá í hvort mamma eigi að fara út í kleinu bransann. Kærastan mín segir að hún steiki guðdómlegar kleinur , er enn að átta mig hvort hún sé að segja satt eða bara til að vera góð við gömlu konuna ?? Humm ha humm ;)

Ekki meira í bili

...tungan out ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.06.2007 02:39:58 / tunga

hvað er hægt að gera ??

Humm ég er nú gleyminn á fullt af hlutum en að gleyma passwordinu á myspacið ... ok ok ný búinn að breyta en ég ég mundi breytinguna , en hún virkaði ekki ??? humm ??? drasl . ok þá ætlaði ég að vera sniðugur og lét senda mér "gleymda passwordið" á hotmailið , þá man ég það greinilega ekki heldur og það er pínu að bögga mig því ég hef ekki skipt um lykilorð þar síðan ég byrjaði með hotmail eða msn árið 17hundruðogsúrkál, eða þannig skiluru ! Hvernig tæklar maður svona vandamál ?? Er bara allt glatað þangað til maður fær ljósaperu fyrir ofan hausinn ?? En þetta er eitthvað dúpeíus því eins og ég sagði með heitapóstinn þá hef ég ekki skipt um neitt þar ?? humm ha humm

...tungan pirraður ! :evil:


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 00:53:05 / tunga

Sveitastörfin

Jæja þá er maður búinn að vera í 8 daga á fullu í sveitinni í sauðburðinum með pabba gamla og Betu systir. Maður verður víst að standa vaktina á fæðingardeildinni á þessum tíma árs því það koma um það bil 800-900 kvikindi í heiminn á 2-3 vikum. Ég verð út maí mánuð hérna í Tungu en byrja svo að keyra hjá Vörumiðlun 1 júní.

Mér gekk ágætlega í prófunum (var s.s. að klára 2 ár í íþróttafræðinni í HR). Er reyndar ekki búinn að fá út úr öllum prófunum en það verður bara að koma í ljós. Alveg óþolandi að þurfa að bíða lengi með að fá út úr prófum.

Óskar meistari kom í heimsókn í sveitina ásamt Hafrúnu kærustunni hans. Maður að sjálfssögðu póstar myndir af því hérna á eftir ;)

Maður á sér ekkert líf hérna í sveitinni. Það er ekkert gsm samband, en sem betur fer er þráðlaus internet tenging, thank god ! Maður er úti í fjárhúsum frá 8 eða 9 á morgnanna og alveg til miðnættis. Stundum er maður heppinn ef maður nær kvöldmat á réttum degi. Því maður getur ekki alltaf hlaupið frá þessum kindum ef þær taka upp á því að bera lömbum í kippum, þá verður maður náttúrulega að græja það áður en maður getur leyft sér annað.

En ég læt myndirnar duga hérna í lokin.. Hafið það gott og sjáumst í sumar.

Þessi fremsti heitir Tangó,ljósi á bakvið heitir Geisli og svo er það Glitnir til hægri(rauðblésótti)

Óskar með svarta gimbur ;)

Óskar og Hafrún

Tunga!!! Heimahúsið ásamt skemmunni til hægri. Þar geymum við öll tækin yfir veturinn.

Hérna er hver kind með eigin stíu ásamt lömbunum sínum. Bráðnauðsynlegt að svo sé fyrstu daganna meðan lömbin eru að komast á fót.

Kollótta kindin mín nýborin með 2 lömb, hrút og gimbur. ;)

Hérna er hann BINGO hundurinn okkar. Hann er að verða gamall greyjið. 95 model. Hvað er það í hundaárum ?? hummm?

Þetta er hún Stjarna og hún er ein af forystufénaðinum sem við eigum. Hún er alveg óð í brauð og hún er sirka 2 sek að slátra einni brauðsneið ;)

Víkingur Þór frændi kom í heimsókn. Ég fór og rúntaði aðeins með hann á liðléttingnum. Leyfði honum að sjálfssögðu að stýra ;)

Við félagarnir aftur ;)

..................................................................................................................

Komið nóg í bili.

...tungan out !!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 00:45:31 / tunga

Myndablogg. Óvissuferð íþróttafræðinema eftir síðasta próf.

Kristján , ég og Andri komnir í gallanna að gera okkur klára í kajakinn ;)

Allur hópurinn sem fór í ferðina ;)

Rafn Haraldur, Ég og Kristján komnir með einn ískaldann í hönd ;)

Menn að koma sér fyrir á vatninu, síðan fórum við einhvern hring. Rosa gaman ! All margir sem lentu í vatninu ;)

Ekki meira í bili.

...tungan out


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 22:15:44 / tunga

Andlitsbókin.com

Hædíhó !

 Mig langar að benda á alveg snilldar síðu sem enginn (mjög fáir allaveganna) í kringum mig vita ekkert um. Þetta er www.facebook.com sem er sjöunda vinsælasta síðan í USA og fyrirtæki eins og google og yahoo búin að reyna að kaupa hana undanfarið en eigandi facebook hefur ekki áhuga að selja hana. Allaveganna ...

Maður er rosalega snöggur að hlaða inn myndunum sínum. Maður er svona 3 - 5 mín að hlaða 40 -50 myndum. (ég er alveg að sjá það gerast á picturetrail.com ... NOT !!!).

Facebook virkar líka svona eins og Myspace með að tengjast vinum sínum og hægt að commenta hægri , vinstri á félaganna. Síðan fær maður alltaf skilaboð þegar skráður vinur manns var að setja eitthvað sniðugt inn á "andlitsbókina" sína. Og auðvitað þarf maður að vera vinur einhvers til að geta séð myndirnar.  

Farið bara á www.facebook.com og tékkið á þessu.

.....tungan out !!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 23:23:33 / tunga

17 apríl yes sirí

Óskar Sigurðsson frá Sauðárkróki er 24 ára í dag. Til lukku með það!! Í tilefni þess þá læt ég fylgja með nokkrar myndir af honum í banastuði ;) múhahahaha

enjoy...

 

blindfullur á kantinum en er bara sitjandi og vill ekki viðurkenna það strax !!

Þarna stóð hann upp og fór að vera með skæting ! DJ djöfull að mana hann upp í allskonar vitleysu þetta kvöld og ætlaði að rústa íbúðinni minni.

Óskar leyfði ekki einu sinni Pöllunni að vera með á myndinni, svona eru menn frekir.

Mig minnir að hann Óskar hafi verið að syngja þarna, humm don't quit your day job ...hahahah

Zoolanderinn í beinni útsendingu takk fyrir. Kussmann Jónsson fylgist spenntur með !

Þarna vildi Kussmann vera með í model lookinu. ;)

Aðeins nokkrir blenni dropar komnir í kappann þarna !

Þarna er TUNGU svipurinn ógurlegi á köllunum. Múhahahaha

Til hamingju með daginn enn og aftur.

...tungan out ! ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.04.2007 18:37:18 / tunga

páskar

Svona var á skíðasvæðinu á skírdag í fyrra.
Afhverju klikkaði maður á því að fara á bretti um páskanna! Ég er ekki enn búinn að fyrirgefa mér þau mistök !
btw, þetta er skíðasvæði Tindastóls.
Ég skrapp í sveitina sem sagt um páskanna og var að hjálpa gamla í verkunum. Það þurfti að rýja, bólusetja, moka skít úr fjárhúsunum og þetta venjulega:heygjafir. Maður skrapp nú líka á djammið. Fór fyrst í smá game hjá ÓMARSSON bræðrum sem er nú aldrei leiðinlegt og eftir það var haldið á Mælifell til að dansa yfir Herramönnum/spútnik. Annars var maður nokkuð rólegur bara um páskanna. Náði nú að hrekkja Sigrúnu Ben á 1.apríl sem kórónaði daginn fyrir mér, vá hvað hún hljóp 1.apríl. hahahaha ! Ég bað hana að ná í jakkafötin mín í efnalaugina á sunnudeginum, það myndi koma kona og opna búðina og græja þetta því ég væri að vera of seinn í fermingarveislu ( ég var semsagt að keyra norður þegar þetta á sér stað) . Stelpukjáninn fór náttúrulega fyrir frænda sinn og græjaði þetta, beið í smástund fyrir utan áður en hún fékk að vita að þetta væri gabb. Vá ég hef ekki heyrt hana vera svona brjálaða lengi ;) en samt á góðan máta !
Ég ætla að fara skrifa niður góðar hugmyndir til hrekkja á næsta ári. múhahaha
....tungan out
ps.) Langar að óska brósa til lukku með daginn. Kappinn er 29 ára í dag ! Seigur ! ;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.03.2007 00:00:59 / tunga

24 ára þann 29.mars 2007

  365 dagar í rosalegt 25 ára game ;) ykkur er öllum boðið ;) hehehe

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 06:42:53 / tunga

Beatbox dauðans. Frakkarnir kunna þetta !

http://www.dailymotion.com/video/x1c81n_joseph-beatboxing-at-nouvelle-star

 Rosalegur í kjaftinum þessi ! demm ! ótrúlegt !

...tungan out


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 00:02:14 / tunga

flutningar - bruni og bretti

Já kallinn er fluttur á Einarsnes 33 í Skerjafirði. Bý með 2 eðal drengjum sem heita Þorbjörn og Mundi. Þeir sem eru Króksarar vita hverjir það eru þið hin verðið bara að koma í heimsókn að hitta á þá til að vita hverjir það eru.

Það er búið að gerast alls konar skítur síðan síðasta blogg. Til dæmis kviknaði í bílnum mínum! Bókstaflega ! Ég var að skreppa á Krókinn í góðum fíling á föstudegi og var nýlentur í bæinn og var hjá fiskiðjunni kemur þessi rosa reykur upp úr húddinu og eldur í vélinni. Einhver á Vélaverkstæðinu hérna í bænum kom og hjálpaði mér að slökkva eldinn. Bílskratti að láta svona við mig. Mér þótti vænt um Avensisinn minn.

 Ég skrapp á Snjóbretti upp í Bláfjöll síðastliðin mánudag. Djöfull var það góð hugmynd ! Þvílíkt nice að fara á bretti aftur! Kannski að maður geri meira af því um páskanna þegar maður fer á Krókinn í sveitasæluna.

jæja þá er komið smá info á hvað er að gerast hjá mér þessa daganna ...

..tungan out


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.01.2007 16:03:00 / tunga

Mí læk verí næs, hóv mötsh??

Nýja árið byrjar þvílíkt ömurlega !!!! Myndavélinni minni var stolið á Pravda ;( Ég fékk vírus í tölvuna mína fyrir jól og setti allt dótið mitt yfir á flakkarann og síðan straujaði maður lapparann og auðvitað gleymdi Gunni að færa draslið aftur yfir ;( ... Allt mitt háskólanám og allar mínar ljósmyndir !! gone því aulinn ég missti harða diskinn minn í gólfið og allt í rúst !! GLATAÐ ! on the bright side er ég á Króknum og það gengur bara vel að kenna! Hressir krakkar hérna í Skagafirðinum ;) Síðan er ég að skoða flugför til US and A í mars mánuði því ég ætla að heimsækja Óskar félaga minn! 17.mars til 25.mars er nefnilega SPRING BRAKE ! Er að leita að flugi til Flórída sem mun væntanlega vera djammstaðurinn en ég ætla nú að fá það staðfest áður enn maður ýtir á KAUPA takkann í tölvunni ;) ...Snilld að leigja sér hús eða eitthvað og chilla á ströndinni og partý american style!!! ´Mér hefur nú alltaf fundist USA fólk fáránlega heimskt upp til hópa, það verður gaman að komast að því hvort það er satt, ég held að ég sé með fordóma gagnvart Kananum, en það er ástæða fyrir því. Ég hef ekki hitt einn BNA mann sem meikar sens. Humm ha humm ?? Maximus Mundi er mjög svo heitur fyrir því að koma líka sem er brilliant. Og það var reyndar hann sem stakk upp á þessu in the first place, hann er byrjaður í nýrri lýsingarvinnu og óska ég honum til lukku með það! Hann þarf bara að kríja út frí í heila vinnuviku og þá er hann good to go ;) ... tungan out !

» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5